Monday, March 10, 2025
spot_img

Lánasjóður sveitarfélaga – Útboð LSS 39 0303 og LSS151155

Lánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til útboðs á skuldabréfaflokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 miðvikudaginn 12. mars 2025. Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 til 1.500 milljónir króna að nafnvirði í skuldabréfaflokknum LSS151155 og að fjárhæð 500 til 1.500 milljónir króna að nafnvirði í skuldabréfaflokknum LSS 39 0303. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Lánasjóðurinn hefur boðið aðalmiðlurum sjóðsins Arion banka, Íslandsbanka, Kviku banka og Landsbankanum að taka þátt í útboðinu.

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við eftirfarandi lýsingu:

Fyrirkomulag: “Hollensk” uppboðsaðferð þar sem allir tilboðsgjafar fá sömu ávöxtunarkröfu og hæst er tekið. Heimilt er að afturkalla eða breyta tilboði með sama hætti og tilboðum er skilað inn, sé það gert fyrir lok útboðsfrests.

Tilboð: Í tilboði skal taka fram ávöxtunarkröfu án þóknunar og tilboðsfjárhæð.  

Að öðru leyti er vísað til skilmála skuldabréfanna á heimasíðu Lánasjóðs sveitarfélaga

Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00, miðvikudaginn 12. mars 2025 til Lánasjóðs sveitarfélaga á netfangið [email protected]

Öllum tilboðum verður svarað fyrir kl. 17:00 á útboðsdegi. Uppgjör sölu fer fram mánudaginn 17. mars 2025.

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, [email protected] / s. 515 4949

Powered by SlickText.com

Hot this week

Bird Joint Venture Signs Project Alliance Agreement for East Harbour Transit Hub

MISSISSAUGA, Ontario, March 10, 2025 (GLOBE NEWSWIRE)...

Net Asset Value(s)

                 WisdomTree Issuer plc – Daily Fund Prices 07-March-25        WisdomTree...

NFI subsidiary New Flyer secures order for 43 buses from Durham Region Transit

New Flyer's heavy-duty transit buses will replace...

Topics

spot_img

Related Articles

Popular Categories

spot_img