Hagnaður fyrir skatta af reglulegri starfsemi var yfir afkomu spá eða 1.1 milljarður króna. Mikill afkomubati frá fyrra ári.
- Rekstrartekjur samstæðunnar námu rúmlega 66 milljörðum ISK (€443.2m) fyrir árið 2024 sem er 3% aukning frá 2023
- Rekstrartekjur á fjórða ársfjórðungi 2024 námu 19.3 milljörðum ISK: (€129.2m), sem er aukning um 16% frá sama ársfjórðungi 2023
- Framlegð 2024 hækkar um 1.0 milljarð ISK milli ára (€6.4m)
- Hagnaður fyrir skatta af reglulegri starfsemi er 1.1 milljarður ISK (€7.4m) samanborinn við 101 milljón ISK (€0.7m) 2023 sem er aukning um 1.0 milljarð ISK (€6.7m)
- Hagnaður ársins eftir skatta er 414 milljónir ISK (€2.8m) samanborinn við 3 milljarða ISK tap (€20.3m) 2023
- Hagnaður á hlut fyrir árið 2024 er 0.14 ISK á hlut en 2023 var tap á hlut 1.1 ISK
- Heildareignir námu 36.4 milljörðum ISK (€253.9m), lækkun um 127 milljónir ISK (€0.9m) frá ársbyrjun.
- Eiginfjárhlutfall hækkaði í 30.0% frá 28.5% í lok árs 2023
- EBITDA fyrir árið 2024 er 2.6 milljarðar ISK (€18.0m), en var 1.6 milljarður ISK (€11.3m) á árinu 2023
- EBITDA af reglulegri starfsemi 2024 er 2.7 milljarðar ISK (€18.7m) en var 1.7 milljarður ISK (€11.7m) árið 2023
- Hagnaður fyrir skatta af reglulegri starfsemi 2025 verður samkvæmt afkomuspá, 1.1 – 1.4 milljarðar ISK (€7.5m – €9.5m)
Rekstrartekjur starfseminnar í Suður-Evrópu voru 9.1 milljarður ISK (€61.1m) á fjórða ársfjórðungi, sem er 6.5% aukning miðað við sama tímabil árið 2023. Heildarsala ársins var sambærileg við fyrra ár í verðmæti en dróst saman um 2% í magni. Hagnaður starfseminnar fyrir skatta nam 871 milljón ISK (€5.8m), sem er aukning um 766 milljónir ISK (€5.1m) frá árinu 2023. Sala Iberica Group lækkaði um 1% í verðmæti og 3% í magni. Sala hjá Ahumados Domínguez jókst um 4.5% að verðmæti árið 2024 og 1% í magni.
Rekstrartekjur starfseminnar í Norður-Evrópu voru 2.6 milljarðar ISK (€17.2m), sem er 13% aukning frá fjórða ársfjórðungi í fyrra. Heildarsala ársins 2024 jókst um 6% og nam 8.6 milljörðum ISK (€57.3m), frá 8.1 milljarði ISK (€54.2m) árið 2023. Verð á laxi var hærra en reiknað var með í byrjun árs og hélst hátt fram á annan ársfjórðung. Það hafði áhrif á rekstrarniðurstöðuna sem skapaði svipað óvissuástand og var á sama tíma árið áður. Verð á laxi jafnaðist út síðari hluta ársins. Hagnaður starfseminnar fyrir skatta á fjórða ársfjórðungi nam 229 milljónum ISK (€1.5m) samanborinn við 163 milljónir ISK (€1.1m) á fjórða ársfjórðungi 2023. Hagnaður ársins 2024 fyrir skatta var sambærilegur við árið 2023.
Rekstrartekjur Sölu- og dreifingarhluta starfseminnar voru 8.0 milljarðar ISK (€53.6m) á fjórða ársfjórðungi, sem er 22% aukning frá sama ársfjórðungi 2023. Heildarsala ársins 2024 nam 27.0 milljörðum ISK (€181m), sem er 2% aukning samanborið við 26.5 milljarða ISK (€177.6m) árið 2023. Aukin eftirspurn og hækkandi verð á þorski og ýsu inn á markaði í Bretlandi og Bandaríkjunum voru lykillinn að góðum árangri auk þess sem batamerki á mörkuðum í Evrópu settu sitt mark á söluna frá Íslandi.
Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir skatta var yfir afkomuspá. Afkomuspá fyrir árið var á bilinu 700 – 1000 milljónir ISK (€5.0m – €7.0m) en niðurstaða ársins er 1.1 milljarður ISK (€7.4m). Gert er ráð fyrir áframhaldandi háu þorskverði á árinu og að verð á laxi verði í hærri kantinum fyrri hluta ársins en lækki á síðari hluta.
Ægir Páll Friðbertsson, CEO
„Árið 2024 var ár viðsnúnings í rekstri Iceland Seafood og skiluðu öll rekstrarfélög samstæðunnar hagnaði á árinu eftir mjög erfið ár þar á undan. Það hefur verið mjög ánægjulegt að sjá þessa rekstrarþróun á fyrsta heila starfsári mínu hjá félaginu jafnframt því að skynja þau tækifæri sem felast í félaginu vegna öflugs starfsfólks, tryggra birgja og öflugra viðskiptavina. Fram eftir árinu 2024 voru sveiflur í verðum aðfanga og óvissa var á markaði. Hátt verð var á laxi fram undir mitt ár en það náði síðan jafnvægi sem gerði það að verkum að hagnaður var af laxa tengdri starfsemi. Á sama hátt urðu breytingar á mörkuðum fyrir hvít fisk á síðasta fjórðungi ársins, salan jókst og var afkoma fjórðungsins ein sú besta sem verið hefur hjá félaginu á þeim ársfjórðungi. Aukin eftirspurn sem við sáum á ársfjórðungnum eftir hvít fisks afurðum skýrist meðal annars af minni úthlutun þorskkvóta í Barentshafi fyrir árið 2025 og eru allar líkur á því að sú eftirspurn haldist áfram út árið 2025 og til lengri tíma.
Þessi viðsnúningur í rekstri Iceland Seafood á árinu 2024 er mjög jákvæður í ljósi þess að félagið var að selja erfiðar birgðir sem skiluðu neikvæðri afkomu auk þess sem að vaxtakostnaður hækkaði verulega á milli áranna 2023 og 2024 eða sem nam 0.5 milljörðum ISK (€3.6m). Þessi hækkun vaxtakostnaðar átti sér stað samhliða hækkun vaxta í helstu viðskiptalöndum okkar en þegar líða tók á árið 2024 sáum við vexti fara að lækka sem er jákvætt fyrir félagið.
Iceland Seafood er sterkt félag sem hefur á að skipa reyndu og öflugu starfsfólki sem hefur verið að glíma við ýmsar áskoranir í rekstrinum á undanförnum árum. Á árinu 2025 eru allar líkur á að aðfangakeðjan verði áskorun sökum minnkandi kvóta í þorski sem gerir það að verkum að framboðið verður minna en verið hefur mörg undanfarin ár. Einnig liggur fyrir að það þarf að endurfjármagna um helming af vaxtaberandi skuldum félagsins á árinu og er sú vinna þegar hafin. Báðir þessir þættir geta haft áhrif á rekstur félagsins. Helstu áherslur félagsins á næstu mánuðum verða því að treysta aðfangakeðjuna, endurfjármögnun og áframhaldandi vinna við endurskoðun á stefnu félagsins með það eitt að markmiði að renna styrkari stoðum undir reksturinn og efla hann til framtíðar.“
Rafrænn fjárfestafundur
Í dag klukkan 16:30 GMT mun félagið halda netfund fyrir fjárfesta og markaðsaðila þar sem stjórnendur munu kynna og ræða niðurstöður fjórða ársfjórðungs og 2024.
Fundurinn er eingöngu á netinu og verður í beinni útsendingu á íslensku á vefsíðum okkar
www.icelandseafood.com og www.icelandseafood.is
Sjá hlekk að neðan
https://vimeo.com/event/4947571/embed/b8ad233675/interaction
og verður upptaka aðgengileg eftir fundinn á www.icelandseafood.com/investors
Þátttakendur á fundinum geta sent skriflegar fyrirspurnir fyrir og á meðan á fundinum stendur á póstfangið [email protected].
Fyrirvari
Allar yfirlýsingar varðandi framtíðarsýn í þessari tilkynningu endurspegla núverandi skoðanir stjórnenda á framtíðarviðburðum og niðurstöðu. Það að þessar skoðanir séu byggðar á afstöðu sem stjórnendur telja eðlilegar, er engin trygging fyrir því að atburðir og skoðanir verði að veruleika. Framtíðarsýn felur eðlilega í sér óvissu og áhættu; Niðurstöður geta verið frábrugðnar fullyrðingum eða skoðunum sem setter eru fram.
Frekari upplýsingar:
Iceland Seafood International hf.
http://www.icelandseafood.com/Investors
Ægir Páll Friðbertsson, [email protected]
Attachments
- 254900CJS0OI5B8GO668-2024-12-31-0-en
- 2024 ISI – Financial Statements Consolidated – Final
- Q4 2024 Investor Presentation