Thursday, March 12, 2026
spot_img

Lánasjóður sveitarfélaga – Útboð LSS 39 0303 og LSS151155

Lánasjóður sveitarfélaga hefur ákveðið að efna til útboðs á skuldabréfaflokkunum LSS 39 0303 og LSS151155 fimmtudaginn 9. október 2025. Lánasjóðurinn stefnir að því að taka tilboðum að fjárhæð 500 til 1.000 milljónir króna að nafnvirði í skuldabréfaflokknum LSS151155 og að fjárhæð 1.000 til 2.000 milljónir króna að nafnvirði í skuldabréfaflokknum LSS 39 0303. Lánasjóðurinn áskilur sér rétt til að hækka og lækka útboðsfjárhæð útboðsins, taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Lánasjóðurinn hefur boðið aðalmiðlurum sjóðsins Arion banka, Íslandsbanka, Kviku banka, Landsbankanum og Fossum fjárfestingabanka að taka þátt í útboðinu. 

Óskað er eftir tilboðum í samræmi við eftirfarandi lýsingu:

Fyrirkomulag: “Hollensk” uppboðsaðferð þar sem allir tilboðsgjafar fá sömu ávöxtunarkröfu og hæst er tekið. Heimilt er að afturkalla eða breyta tilboði með sama hætti og tilboðum er skilað inn, sé það gert fyrir lok útboðsfrests.

Tilboð: Í tilboði skal taka fram ávöxtunarkröfu án þóknunar og tilboðsfjárhæð.  

Að öðru leyti er vísað til skilmála skuldabréfanna á heimasíðu Lánasjóðs sveitarfélaga

Tilboð skulu berast fyrir kl. 16:00, fimmtudaginn 9. október 2025 til Lánasjóðs sveitarfélaga á netfangið [email protected]

Öllum tilboðum verður svarað fyrir kl. 17:00 á útboðsdegi. Uppgjör sölu fer fram þriðjudaginn 14. október 2025.

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, [email protected] / s. 515 4949

Powered by SlickText.com

Hot this week

Erasca Announces Pricing of Upsized Public Offering of Common Stock

SAN DIEGO, Jan. 21, 2026 (GLOBE NEWSWIRE)...

Reflex Advanced Announces Private Placement Offering

NOT FOR DISTRIBUTION TO UNITED STATES NEWSWIRE SERVICES OR...

Telesat Statement on Creditor Litigation

OTTAWA, Ontario, Jan. 21, 2026 (GLOBE NEWSWIRE)...

Madison Pacific Properties Inc. declares dividend

VANCOUVER, British Columbia, Jan. 21, 2026 (GLOBE...

Rocket Lab Neutron Test Update

LONG BEACH, Calif., Jan. 21, 2026 (GLOBE...

Topics

Reflex Advanced Announces Private Placement Offering

NOT FOR DISTRIBUTION TO UNITED STATES NEWSWIRE SERVICES OR...

Telesat Statement on Creditor Litigation

OTTAWA, Ontario, Jan. 21, 2026 (GLOBE NEWSWIRE)...

Madison Pacific Properties Inc. declares dividend

VANCOUVER, British Columbia, Jan. 21, 2026 (GLOBE...

Rocket Lab Neutron Test Update

LONG BEACH, Calif., Jan. 21, 2026 (GLOBE...
spot_img

Related Articles

Popular Categories

spot_img